DJÖÖÖÖÖÖÖFULL!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Var náttúruelga búinn að skrifa þvílíkt langan texta hérna sem
síðan allt í einu bara hverfur... Samt kópiaði ég hann!
AAAARRGG... jæja ég var bara að röfla eitthvað samt, kanski
ykkur bara til lukku að þetta hvarf.
Ég var svona aðallega að tala um það sem hefur komið á daginn
hjá mér. Nú er náttúrulega allt að fara á fullt í sambandi
við sviðamessuna. Næsta vika verður sennilegast strembin en
skemmtileg. Það er bara svo gaman að vera á fullu í einhverju
svona félagslegu. Víst maður er nú ekki lengur að stússast í
leikritum hjá LME sem ég sakna vissulega þá er svo gaman að hafa
einhver svona verkefni. Vill bara enn og aftur kvetja alla þá
sem lesa þetta til að koma á sviðamessu.
Kíkti á barinn í gær með góðum og fallegum hóp af ungu fólki,
kanski fyrir utan Stebba kennara, hann er ekki ungur lengur, hann
er orðinn að Stebba með skeggið
Það rættist bara úr þessu,
fórum svo í partý til Ara Guðjóns eftir á og vorum þar sennilega
til klukkan að verða sjö. Hlustuð mikið á Bubba og þá
sennilegast svona þrjátíu sinnum á lagið Mási, Rabba til mikillar
hamingju. Enda er þetta lag helvíti gott, þá aðallega
textinn, þvílíkt meistaraverk.
Gerði smá myndadrasl hérna á síðunni. Það er linkur neðst niðri
til vinstri þar sem ég mun fara að hlaða inn myndum.
Jæja ég er farinn að sofa...
Bueno notshes (hvernig í andskotanum sem þetta er skrifað)
Gunnar....
p.s. ég sá einu sinni karfa sem síðan varð flakaður!